Björn Þórðarson

Guðfinna Guðmundsdóttir hefur afhent Borgarskjalasafn Reykjavíkur til varðveislu einkaskjalasafn Dr. juris Björns Þórðarsonar, sem var forsætisráðherra utanþingsstjórnar á miklum umbrotatíma 1942 til 1944. Guðfinna er tengdadóttir Björns.

Safnið er mjög viðamikið, alls 32 öskjur og nær yfir ævihlaup Björns, bæði í einkalífi, starfi og sem stjórnmálamaður. Safnið inniheldur mikið af heimildum um sjálfstæðisbaráttu og lýðveldisstofnun Íslendinga sem ekki hafa áður verið aðgengilegar fræðimönnum og almenningi.

Sumt af þessu eru einstakar heimildir, til dæmis dagbækur Björns og minnisbækur frá þeim tíma þegar hann var forsætisráðherra. Þær gefa ótrúlega skemmtilega innsýn bak við tjöldin á þessum umbrotatíma. Borgarskjalasafn Reykjavíkur hefur ljósmyndað umræddar dagbækur og minnisbækur og eru þær nú aðgengilegar öllum á neti hér fyrir neðan. Annars vegar er um handskrifaðar dagbækur sem hann skrifaði og hins vegar vélritað handrit gert eftir þeim, sem gerir það hraðvirkara og lesa yfir textann.